top of page

SEARCH BY TAGS: 

RECENT POSTS: 

FOLLOW ME:

  • Facebook Clean Grey
  • Twitter Clean Grey
  • Instagram Clean Grey

code.org

  • Feb 3, 2016
  • 1 min read

Við Helga, kollegi minn, ákváðum það á fundi í gær að kenna forritun vikulega. Við komum til með að leggja tvær kennslustundir á viku undir forritun og byrjuðum í dag.

Helga fór á forritunarnámskeið hjá Skema í fyrra og hún ætlar að kynna Alice fyrir krökkunum sem ekki hafa fengið kennslu á það forrit. Þeir sem ekki verða í Alice-verkefnum með Helgu verða hjá mér í að leysa verkefni af code.org.

Ég bjó svo til kennaraaðgang á code.org þar sem ógrynni af efni er að finna. Í tímanum í dag bjuggu nemendur til aðgang að code.org og fengu um leið aðgang að námskeiði/bekk sem ég var búinn að búa til.

Það er ekki oft sem allir nemendur eru all-in í verkefni sem lagt er fyrir bekkinn en þarna fundum við flöt sem allir hafa gaman af. Þekkingin dreyfist mjög hratt á milli nemenda og þau spyrja okkur nánast aldrei hvað eigi að gera heldur snúa sér að bekkjarsystkinum sínum í leit að aðstoð - það er klárlega besta leiðin til að læra!

Við bíðum spennt eftir næsta miðvikudegi og hlökkum til að læra forritun með nemendum okkar.


 
 
 

Comments


  • b-facebook
  • Twitter Round
  • Instagram Black Round
bottom of page