top of page

SEARCH BY TAGS: 

RECENT POSTS: 

FOLLOW ME:

  • Facebook Clean Grey
  • Twitter Clean Grey
  • Instagram Clean Grey

Mystery skype ... fyrstu kynni

  • Feb 1, 2016
  • 2 min read

Nemendur í dag eru merkilega klárir og koma kennurum sínum oft í opna skjöldu. Á föstudaginn höfðum við skipulagt mystery skype session með Grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík og var mikil spenna í hópnum. Við tókum rúmlega tvær kennslustundir í undirbúning, skiptum okkur í hlutverk, ræddum um að bera virðingu fyrir verkefninu og hver markmið þessu væru. Á sama tíma og sessionið átti að fara fram vorum við með rúmlega 30 skólastjórnendur í Kraganum og af Reykjanesi í heimsókn sem fylgdust spenntir með framvindu mála. Þegar ég var búinn að gera allt klár, setja Skype upp á töflu og beið bara eftir hringingu kallaði nemandi til mín 'má ég giska hvar skólinn er?' Eðlilega svaraði ég þeirri spurningu játandi þar sem skólinn gæti verið hvar sem er. 'Ólafsvík' kom næst. Ég reyndi auðvitað að setja upp pókerandlitið og gera lítið úr giskinu en þá rétti sessunautur þess sem spurði upp iPad-inn sinn og sagði 'nei, hérna er húsið hennar! Kennarinn á heima í Ólafsvík'.

Þá höfðu krakkarnir tekið sig saman og googlað nafn kennarans sem við ætluðum að mystery skype-a með og voru meira að segja búin að finna húsið hennar á ja.is - SNILLINGAR!

Verkefnið var ónýtt en við prófuðum samt sem áður að hringja til Ólafsvíkur og leyfa þeim að giska á okkar staðsetningu.

´I morgun hringdum við svo í Grunnskólann á Flateyri og áttum mjög gott session með þeim. Þessi kennsluaðferð er alger snilld og upplifun krakkana er mjög jákvæð. Þau eru staðráðin í því að vera á undan hinum skólanum og samvinnan og metnaðurinn skín í augu allra nemenda.

Eftir hvert samtal ætlum við svo að safna saman upplýsingum um bæinn/borgina sem viðmælendur okkar búa í í Book Creator. Þannig búa krakkarnir til bók með upplýsingum um borgir og bæi víðsvegar um heiminn þar sem hver og einn nemandi setur inn þær upplýsingar sem honum þykja merkilegar.

Næsta Mystery skype session okkar er planað þann 19. febrúar með skóla í Evrópu og svo annað með skóla í Suður-Ameríku í byrjun mars.


 
 
 

Comments


  • b-facebook
  • Twitter Round
  • Instagram Black Round
bottom of page